Mánudagur 19. maí 2025 11:43

Eurovision er RÚV ofviða

Eru Eurovision-sérfræðingar RÚV sammála Arnari Eggerti um að þeir dragi Íslendinga í raun á asnaeyrunum með öllum áróðrinum um keppnina? Hún sé bara eitt stórt samsæri gyðinga?

Ríkisútvarpið (RÚV) er tengiliður og farvegur Íslendinga inn í söngvakeppni Evrópu, Eurovision. Á þess vegum eru fulltrúar Íslands valdir í keppnina og öll framkvæmd þátttökunnar af Íslands hálfu er í höndum RÚV sem aðila að Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva.

Keppnin fór fram í 69. sinn laugardaginn 17. maí, að þessu sinni í Basel í Sviss. Svisslendingar stóðu afburðavel að allri umgjörð keppninnar og tugir þúsunda fylgdust með henni á staðnum auk tuga, ef ekki hundruða, milljóna manna við sjónvarpsskjái um heim allan.

Almenningur ræður miklu um úrslit keppninnar með vali á fulltrúum þjóða í tveimur undankeppnum og loks með hálfum hlut á móti valnefndum í hverju þátttökulandanna 37 en af þeim kepptu 26 til úrslita. Þar sigraði Austurríki með 436 atkv. (178 atkv. frá almenningi en 258 frá valnefnd), Ísrael var í 2. sæti með 357 atkv. (297:60) og Eistland hlaut 3. sæti með 356 atkv. (258:98). Ísland hlaut 25. sæti með 33 atkvæðum frá almenningi.

Mikil spenna ríkti í söngsalnum áður en fyrir lá að Austurríki fengi 178 atkv. stuðning almennings, án hans hefði Ísrael komið sem sigurvegari frá keppninni.

Screenshot-2025-05-19-at-11.41.02Arnar Eggert Thoroddsen, skjáskot á ruv.is

Að kvöldi sunnudagsins 18. maí bar svo við að fréttastofa RÚV kallaði Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistar- og félagsfræðing, á vettvang til að grafa undan trausti á þá sem stóðu að framkvæmd keppninnar í Basel. Sagðist hann „handviss“ um að Ísraelar hefðu „beitt áhrifum sínum til að sanka að sér atkvæðum í Eurovision“. Hringt hefði verið í fólk og það hvatt til að kjósa lag Ísraels og þetta væri liður í „menningarlegum hvítþvotti“ Ísraela. Hann sagði að Ísraelar hefðu í raun „yfirtekið keppnina“ og sér þætti þetta skringilegt án þess að geta „beint sannað neitt“.

Í fréttinni um þetta segir á ruv.is:

„Arnar Eggert segir að sér finnist ömurlegt hvernig Ísrael hafi yfirtekið Júróvisjón með klækjabrögðum og fjármagni, og hafi breytt þessari söngvakeppni í áróðurstæki.“ Þá sagði hann:

„Nú liggur ljóst fyrir að Eurovision-keppnin er fjármögnuð af Ísrael beint. Það auðvitað felur í sér að þeir geta ráðið því sem þeir vilja ráða hvað keppnina varðar.“

Tónlistar- og félagsfræðingnum er að sjálfsögðu frjálst að aðhyllast þessa kenningu. Hann skákar því í skjóli þess að hún verði líklega aldrei sönnuð. Hafi Ísraelar stundað úthringingar mætti halda að Eistlendingar hefðu gert það líka fyrir sitt lag. Hafa þeir eitthvað að „hvítþvo“?

Eru Eurovision-sérfræðingar RÚV sammála Arnari Eggerti um að þeir dragi Íslendinga í raun á asnaeyrunum með öllum áróðrinum um keppnina? Hún sé bara eitt stórt samsæri gyðinga?

Fréttastofa RÚV er fræg fyrir að kalla á álitsgjafa og hampa titlum þeirra til að breyta einkaskoðunum í „frétt“. Enn skal spurt: er ekkert viðmið á fréttastofunni? Enginn grunnur sem tryggir hlustendum að ekki sé ausið yfir þá áróðri? Má segja allt um gyðinga í Efstaleitinu hvort sem það er satt eða lygi?