22.11.2019 19:06

Brusselferð lokið

Í Brussel flutti ég fjórar ræður um EES-skýrsluna og heimsótti höfuðstöðvar NATO

Flaug heim frá Brussel í dag með Icelandair. Í upphafi ferðar tilkynnti flugstjórinn að að flugið tæki 2 stundir og 50 mínútur sem sýnir að við flugum í góðum meðvindi.

Fyrir utan að hitta starfsmenn EFTA, ESA (Eftirlitsstofnunar EFTA) og Uppbyggingarsjóðs EES og kynna fyrir þeim nýju EES-skýrsluna sem starfshópurinn undir minni forystu vann hafði ég tækifæri til að fara í heimsókn til fastanefndar Íslands í NATO þar sem Hermann Ingólfsson sendiherra tók við forystu sem fastafulltrúi í byrjun ágúst.

Ég hafði áður komið í þann hluta nýju höfuðstöðva NATO sem opinn er almenningi og blaðamönnum en að þessu sinni fórum við um rýmið sem hýsir fastanefndir og alþjóðlegt starfslið bandalagsins.

Breytingin á aðstöðu frá því sem áður var er svo mikil að algjörlega ólíku er saman að jafna.

IMG_7585Hér birtist mynd sem Hermann sendiherra tók við aðalinngang höfuðstöðvanna en þar er brugðið upp mynd af Atlantshafssáttmálanum og undirritun þeirra sem staðfestu hann í Washington 4. apríl 1949. Við hlið mér má sjá nöfn föður míns og Thors Thors sendiherra.

IMG_0194Þá er hér einnig mynd sem sýnir nýja byggingu – EFTA-húsið – sem mun hýsa EFTA-skrifstofuna, ESA og Uppbyggingarsjóðinn – alls um 200 manns.