17.1.2019 10:04

Óleyst mál í borgarstjórn og á þingi

Í borgarstjórn er deilt um hvort braggamálinu sé lokið á alþingi er haldið lífi í drykkjufundarmálinu.

„Braggamálinu er lokið“ er slagorð Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Samfylkingarinnar, hamrar á þessu og Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, sagði í Silfrinu sunnudaginn 13. janúar að minnihluti borgarstjórnar vildi bara tala um braggamálið til að draga athygli frá því góða sem Samfylkingin væri að gera í borginni. Tæplega hálfur milljarður í bragga væri þannig tala í samhengi fjármála borgarinnar að hún sæist ekki nema eftir sérstaka ábendingu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. formaður Samfylkingarinnar og borgarstjóri, segir „ljótt“ að leggja til að braggamálið sé rannsakað sem sakamál.

Beer1Á alþingi leggur Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, kapp á að viðhalda lífi í rannsókn sinni á því hvort Gunnari Braga Sveinssyni, fyrrv. utanríkisráðherra, hafi verið lofað sendiherraembætti fyrir að skipa Geir H. Haarde og Árna Þór Sigurðsson sendiherra.

Helga Vala efndi til nefndarfundar miðvikudaginn 16. janúar til að yfirheyra Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Vildi hún vita hvort það sem Gunnar Bragi sagði um þetta mál við skál á bar í Reykjavík 20. nóvember 2018 væri rétt. Hvorki Bjarni né Guðlaugur Þór sögðust hafa lofað Gunnari Braga sendiherraembætti.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sat að sumbli með Gunnari Braga á barnum þetta kvöld. Taldi Helga Vala ástæðu til að kalla flokksformanninn auk Gunnars Braga, varaformann flokksins, fyrir nefndina. Þeir urðu ekki við þeim tilmælum og 16. janúar mátti lesa á vefsíðunni Kjarnanum: „Helga Vala Helgadóttir [...] segir að hún telji að skoða þurfi hvort að skipa þurfi rannsóknarnefnd Alþingis um sendiherramálið svokallaða. „Það hefur verið rætt við mig óformlega bæði innan og utan þings frá lögspekingum.““

Á sama tíma og samfylkingarfólkið í borgarstjórn vill gera sem minnst úr botnlausum fjáraustri í braggann í Nauthólsvík og telur „ljótt“ að krefjast frekari rannsóknar á brotum á reglum um stjórnsýslu og skjalameðferð beitir samfylkingarþingmaður öllum tiltækum ráðum sem nefndarformaður til að halda áfram rannsókn á orðum drukkins þingmanns sem dreymir um að verða sendiherra.

Næsta skref á alþingi vegna drykkjufundarins er að breyta þingsköpum. Þingmenn sem ekki eru taldir vanhæfir verða að fjalla um hvort vísa skuli til siðanefndar alþingis að leggja mat á framkomu þeirra sem sátu fundinn. Hér segir „hvort vísa skuli“ þótt vanhæfur forseti alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, segi:

„Þetta snýst um að málið geti gengið rétta boðleið til siðanefndar.“ Hefur hann gert viðbótar-forsætisnefnd vanhæfa með þessum orðum sínum? Innan forsætisnefndar á forseti alþingis lokaorðið. Líklega þurfa lögspekingar þingsins að velta fyrir sér hvort ekki verði að kjósa nýjan þingforseta svo að unnt sé að ljúka þessu máli í forsætisnefnd á viðunandi hátt.