20.7.2018 10:59

Ljósleiðari í Fljótshlíð

Þessa daga eru heimtaugar plægðar til notenda í Fljótshlíð og í veðurblíðunni í gær (19. júlí) var heimtaugin plægð hingað að Kvoslæk.

Unnið er að öðrum áfanga ljósleiðarakerfisins Í Rangárþingi eystra og er áformað að ljúka við lagningu ljósleiðara til notenda í Austur- og Vestur Landeyjum, Fljótshlíð og til notenda í dreifbýli kringum Hvolsvöll.  Í frétt sveitarstjórnar segir að samtals hafi 214 notendur óskað eftir að fá tengdan til sín ljósleiðara, þar af eru um 65% umsókna frá lögheimilum eða notendum með atvinnustarfsemi en um 35% frá notendum í sumarhúsum.

Þessa daga eru heimtaugar plægðar til notenda í Fljótshlíð og í veðurblíðunni í gær (19. júlí) var heimtaugin plægð hingað að Kvoslæk. Skarphéðinn Jóhannesson verktaki og hans menn stóðu mjög fagmannlega að verki sem tók skamman tíma og umrótið var lítið.

Img_6456Img_6466Img_6468

Hér birti ég myndir því til staðfestingar. Plógurinn dregur rörið, borað er gat á húsvegginn og enda rörsins rennt inn um það. Ljósleiðaranum sjálfum verður blásið í gegnum rörin og hann tengdur við búnað sem komið er fyrir í húsinu.

Sveitarfélagið stefnir að því að hægt verði að tengja notendur hvers svæðis fyrir sig strax og lagningu og tengingu strengja lýkur á hverju svæði.

Hér er um byltingarkennda breytingu á öllum samskiptum að ræða en Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leiddi nefnd sem mótaði áætlun um þetta mikla verkefni.

Fyrir neðan eru tvær myndir klukkan 23.20 í gærkvöldi - af Eyjafjallajökli og yfir til Vestmannaeyja. Bláminn lagðist yfir eftir góðan og bjartan sumardag - einn fárra sem komið hafa í ár.

Img_6481 Img_6480